Jóan hér!!

Þú hefur það greinilega gott, hvernig hef ég það? Sá sem á mest af dóti þegar hann deyr ... vinnur !!!

miðvikudagur, mars 29, 2006

púfffffff liggur við að ég sé komin í bjartsýnisgírinn

Komiði sæl krakkar mínir ... fólk mitt gott

Allt bærilegt úr Bjartsýnislandi,
Er á fullu við að byrja að byrja að byrja að skrifa ritgerð nr. 2 í vinnusálfræði.
Ætla að taka fyrir ráðningar, held ég :0)
Fann loksins fleiri heimildir, eigum að hafa þær nokkuð margar og ekkert rusl ahahaha
Ég held að ég sé um það bil að verða aftur bjartsýn á framtíðina, held svei mér þá að við getum klárað allt þetta dót sem við verðum að gera áður en við náum að útskrifast :0)
Svona er lífið, ætla að verða búin að skrifa ritgerðina + smáritgerðina á sunnudagskvöldið kl 20
Ég skal ... ég get ... ég vil ... og ekki orð um það meir
Reyndar verð ég að fara á aðalfundinn hjá FSHA á föstudagskvöldið. Ætli ég verði ekki að fá mér bjór, ok óformleg spurningarkönnun, á Jóa að fá sér bjór næstkomandi föstudagskvöld? Plís plís ahahahahahhahahahhaha

Gólfið hefur það ágætt takk fyrir, erum að reyna að þurrka það aðeins upp ahahah nei nei en við megum ekkert gera fyrr en rakinn er réttur :0( bíða bíða bíða bíða ÓÞOLANDI (eins og þeir sem mig þekkja vita að ég hata að bíða)

jæja best að fara að gera eitthvað af viti, en sko mig ég skrifaði nokkrar línur og það er ekki kominn mánuður síðan síðasta færslan var færð inn múhahaha

Bjartsýniskveðjur frá Broslandi
Jóan

föstudagur, mars 24, 2006

Hjálpi mér nú allir heilagir ... allavega :0)

Komiði sæl

Nú á þessum síðustu og verstu tímum er ég (ásamt fleirum í deildinni :0) um það bil að fá taugaáfall. Taugaáfall og það ekkert af minni gerðinni.
Ég hreinlega veit ekki hvar ég á að byrja ... en byrjum samt á byrjuninni :0)

Í fyrsta lagi, ég ætlaði að haska mér í að koma ritgerðunum tveimur sem ég á eftir að gera á þessari önn frá, ég ætlaði einnig á þessum tímapunkti að vera búin að gera seinni smáritgerðina ásamt því að vera algjörlega búin með rannsóknaráætlunina sem við eigum eftir að skila í félagssálfræðinni. Í stuttu máli sagt þá er ég ekki búin með neitt af þessu (ef frá er talið rannsóknaráætlunin en hún er samt ekki búin).

Í öðru lagi, verð ég að byrja á fullum krafti við að skrifa lokaritgerðina. Ég sem sagt ætlaði að vera búin með það sem stendur undir liðnum í fyrsta lagi til að geta snúið mér alfarið að ritgerðinni. Ég er komin með himinhátt fjall af heimildum, þar sem einn segir þetta en annar segir: "nei nei nei nei þetta er ekki rétt hjá þér kæri vin" o.s.frv. :0) hmm bara gaman að því.

Í þriðja lagi, þá er sonurinn að fara að fermast. Ég er mikið fyrir að halda grand veislur ... mér finnst það svaðalega gaman en einhvern veginn finnst mér of lítill tími fyrir undirbúning. En það reddast allt saman, það gerir það alltaf :0) er þagggggi???

Í fjórða lagi, þá eins og þið vitið flest erum við að gera upp húsið okkar. Nota bene það átti ekki að taka svona langan tíma en svona er það bara. Mér finnst sem ég hafi aldrei þurft að bíða eins mikið eins og eftir að við byrjuðum á þessum breytingum. Bíða eftir þessu og bíða eftir hinu, bíða eftir rafvirkja, bíða eftir múrara, bíða eftir biðinni o.s.frv. T.d. átti að fara í að steypa í morgun en hmmmmmm nei of mikið frost. HVAÐ ER ÞETTA, HVER VILL EKKI AÐ ÞETTA GANGI .... COMMON MINNKA FROSTIÐ MAÐUR hahahahahah

Er að hugsa um að fara nota eftirfarandi: annaðhvort að liggja 'íðí, vera hroðalega kærulaus bara eða setja á mig hanskana og bretta upp á ermar :0) já og brosa aðeins meðfram því að fá taugaáfall, kannski að það sé rétta blandan

Broskveðjur frá Bjartsýnislandi

Jóan

P.S.
Díana, ættum við ekki bara að fara að læra rússnesku. Ég veit um hjón sem væru örugglega til í að kenna hana hahahahah :0)

föstudagur, mars 17, 2006

Jæja elskuranr

Ég verð að fara að girða í brók og blogga. Það á nú ekki að taka svo langan tíma þar sem það gerist ekki neitt nema að læra mismikið :0)
Ég ætla að fara að standa mig betur

Sólskinskveðjur frá Bjartsýnislandi
Jóa

P.S.
Takið lífið ekki of alvarlega ... þið lifið það hvort sem er ekki af

Jesús minn almáttugur

Ég verð að fara að girða í brók og blogga. Það á nú ekki að taka svo langan tíma þar sem það gerist ekki neitt nema að læra mismikið :0)
Ég ætla að fara að standa mig betur

Sólskinskveðjur frá Bjartsýnislandi
Jóa

P.S.
Takið lífið ekki of alvarlega ... þið lifið það hvort sem er ekki af

laugardagur, febrúar 11, 2006

Er horað fólk = óhamingjusamt og feitt fólk = hamingjusamt?

Hæ hó elskurnar mínar

Var að lesa dulítið merkilegt. Ný rannsókn var gefin út um áramótin sem sagði að þeir sem væru mjóir eða væru að minnsta kosti um 5 kg undir "normal" þyngd væru óhamingjusamir. Fyrir einhverjum árum fór einhver að kanna sjálfsmorð og sá þá að mjög algengt var að fólk sem féll fyrir eigin hendi hefði verið of horað, en aftur á móti enginn offitusjúklingur hmmmmmmm
Hinsvegar var önnur rannsókn framkvæmd í Svíþjóð ekki alls fyrir löngu og þar var annað upp á teningnum. Þar kom í ljós að feitir unglingar væru mjög óhamingjusamir einstaklingar. En reyndar gleymdist að taka með í reikninginn það sem almennt allir unglingar ganga í gegnum og því var þessi rannsókn ekki upp á marga fiska svona þegar upp var staðið.

En hvað segið þið elskurnar? Er það málið feitir = hamingjusamir, mjóir = óhamingjusamir
ahahahahahahahahah smá alhæfing hér í gangi :0)

S'o long
Bestu bjartsýnis og broskveðjur frá Búttverjalandi
Jóan

föstudagur, febrúar 03, 2006

Já já ég vil ekki tala um það :0)

Komiði sæl og blessuð elskurnar mínar

Já eins og titillinn segir til um þá ræði ég ekki um strákana mína hér, ég er bara sár og eggjastokkalaus :0)

En að öðru
Hvað er þetta með Múhameð?
Hvers vegna þurfa allir að vera upp á móti öllum? Hvers vegna megum við ekki bara vera ólík, vera ólík í útliti, vera með ólíkar stjórnmála- og trúarskoðanir, búa ólíkt, finnast ólíkur matur góður, laðast að ólíkum einstaklingum o.s.frv. ?
Það sem einum einstaklingi finnst í lagi finnst öðrum ekki í lagi ... og á það ekki bara að vera í lagi?
Það sem einni þjóð finnst normal þarf ekki endilega að vera normal hjá annarri þjóð ... og er það ekki bara í lagi?

Það kemst aldrei á friður ... sorry ... því miður ...
alla vega ekki á meðan að við viðurkennum ekki að það sem er rétt fyrir okkur sé ekki endilega rétt fyrir einhvern annan. Við erum alltof sjálfmiðuð, hlaupum áfram eins og hross fyrir kerru, sjáum hvorki til hægri né vinstri og sjáum heldur ekki til baka. Við Alma vorum mjög að spá í þetta og við erum alveg komnar í hringi, Alma alltaf góð.

Þegar við erum tilbúin að taka öðrum með opnum huga og viðurkenna að það sé ekki bara til dæmis einhver einn guð (hmmmm kannski er þetta bara sami guðinn sem allir trúa á, hann heitir kannski mismunandi nöfnum en er kannski einn og sami maðurinn nú eða konan :0)
æji ég er hætt í bili, þetta er að verða allt of mikið svona á föstudegi.

só long skurnar mínar þangað til næst
Bestu kveðjur frá Bjartsýnislandi
Jóan

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

snökkkkkkkt

Komiði sæl og blessuð góðir hálsar

Ég er enn að ná mér eftir gærdaginn, horfði á handboltaleikinn og viti menn, þrátt fyrir tap eru þeir ennþá strákarnir mínir og að ég held bara enn strákarnir okkar :0) sko þjóðarinnar.
En svo er bara að vona það besta og krossleggja allt sem hægt er (ég mun persónulega krossleggja eggjaleiðarana ef ekki vill betur) og leggja þetta í hendurnar (bókstaflega) á strákunum OKKAR. Þannig að í dag kl 17 þá eiga allir að sameinast um að senda þeim þvílíka og slíka krafta að þeir valti hreinlega yfir frændur okkar norðmenn með mörgum mörgum mörgum mörkum.

Ég hef verið að velta fyrir mér hvað ég eigi að taka fyrir hér á þessari bloggsíðu. Hvort ég eigi bara að vera áfram með eitthvað bull og kjaftæði (eins og mér einni er lagið ... svo sem :0) eða hvort ég eigi að vera með eitthvað öðruvísi bull þ.e.a.s. sem myndi innihalda eitthvað smá vit.
Ég ætla aðeins að leyfa mér að hugsa þetta betur ..... jú ég ætla að vera með eitthvað bull og eitthvað kannski smá vit (þ.e. ef einhver segir mér eitthvað af viti roflroflroflrofl)
Shit ég þarf sem sagt aðeins að hugsa meira, já þið lásuð rétt HUXA, hvernig væri ef ég kæmi með pistla um t.d. innri og ytri stjórnrót nú eða gegnsæisblekkingar o.s.frv.? nú eða ekki :0)

En að lokum vil ég þakka öllum þeim sem studdu mig aftur að takkaborði tölvunnar, ég hefði ekki getað þetta án ykkar. Og Hlynur minn, hvenær ætlar þú að átta þig á því að hlusta og vel á þér eldri og reyndari konu? Ef að ég segi þér eitthvað um gong og trommuskinn þá áttu að leggja við eyrun því það kemur sér áreiðanlega vel í framtíðinni að vita sitthvað um hitun trommuskinna. Svo að þér er fyrir bestu að hlusta þegar drýpur af viskubrunni mínum ahahahahhahahahahahaha

Bestu broskveðjur frá Bjartsýnislandi
Jóan

P.S. ég ætla svo sannarlega að vona að það séu fleiri sem eru ekki komnir af stað eftir jólafríið. Þetta er bara ekkert að ganga hjá mér núna :0( nema líkamsræktin :0)

þriðjudagur, janúar 24, 2006

TESTING ... ONE ... TWO ... THREE

Komið'i sælar elskurnar mínar

Ákvað að skrifa hér nokkur orð

Solong skurnar solong

Kveðja frá Broslandi
Jóan









hehehhehehe
nei bara athuga hvort að einhver lesi þetta ... svo langt síðan ég skrifaði hér síðast. Veit varla hvort ég eigi að halda áfram að skrifa, ég ætla alltaf að vera svo dugleg en stend sjaldnast við það :0)
Þannig að ég spyr ykkur ... þ.e.a.s. þau sem enn nenna að ramba inn á síðuna mína. Á ég að halda áfram að blogga?